Skálmöld
Página inicial > S > Skálmöld > Niðavellir

Niðavellir

Skálmöld


Niðavellir, náhvítur máninn skín
Dvergahellir, dulúð þér villir sýn
Sindradaetur, synir og börnin öll

Vetrarnaetur, verma þau klettafjöll

Aðrir byggja hús og hallir, kastala og kofa
Komið inn í hellinn því að hér
Hér er gott að sofa

Galdrastafir, grafnir í stóran stein
Dvergagrafir, dysjar og gömul bein
Heljarstyrkur, hertekur djúpan dal
Niðamyrkur, naer inn í gullinn sal

Leggist niður börnin mín, já
Stór er okkar stofa
Steingólfið er tandurhreint og hér
Hér er gott að sofa

Trónir á mergi tinnugler
Tindar úr bergi háir
Sindri og hergill halla sér
Hér sofa dvergar gráir

Heyr, mín kaera hefðarfrú
Hér er gott að sofa
Á sig taka náðir nú
Niðahjón og börnin þrjú

Þegar heyrist þrumugnýr
Þór við skulum lofa
Okkur geymir hellir hlýr
Hér er gott að sofa

Náinn syngur naeturljóð
Núna sefur dvergaþjóð

Encontrou algum erro na letra? Por favor, envie uma correção >

Compartilhe
esta música

Ouça estações relacionadas a Skálmöld no Vagalume.FM
ESTAÇÕES