Skálmöld
Página inicial > S > Skálmöld > Að Vetri

Að Vetri

Skálmöld


Vargsgól, vetrarsól
Vesturland í kringum jól
Kolsvart, hjarnið hart
himinhvolfið lýsir okkur stjörnubjart
Köld lönd, klakabönd
klífur fjallið loppin hönd
Snöggt hlaer snarpur blaer
Það snjóar, það snjóar, það snjóar

Við hnjúk, vaðmálsdúk
vefur að sér, dulan mjúk
hlýtt skinn, hlífir kinn
Hamast við að komast yfir fjallgarðinn
Átak, bogið bak
býr sig undir vopnaskak
Snöggt hlaer snarpur blaer
Það snjóar, það snjóar, það snjóar

Gengur yfir gamalt hraun
Gista skúta þar á laun
þeirra mikil þrek- er raun
útilegumenn
Horfa eftir henni burt
héla frystir visna jurt
Eftir henni aldrei spurt
Það snjóar, það snjóar

Snjóar óðum á snjáðan veg
snögg er Þórunn og vörpuleg
Snjóar, hvernig sem snýrðu þér
snarlega yfir fljótið fer
Snjóar nú yfir sneiðinginn
sneisafullur er dalurinn
Snjóar, þótt komi snemma vor
snörla vitin og vella hor
Snjóar ákaft Snaefellsnes
snarpur vindur um andlit blés
Snjóar, þar sem við snertum Hel
snjakahvítt hennar hugarþel
Snjóar og hvergi snarkar glóð
snauðir deyja er frystir blóð

Gömul kona, grá og hokin
gengur ein í kafaldsbyl
Hárið sýlt og hettan fokin
hún kom níður Stekkjargil
Gengur sér til gagns og hita
gamlir faetur virðast strita
Ferðir hennar faestir vita

Það snjóar!

Hennar siður, Friggjarfriður
fótaskriður rennir niður
Brakar viður, stafur styður
Stíginn ryður, gaefusmiður
Þórunn biður Lofn um lið

Letra enviada por null

Encontrou algum erro na letra? Por favor, envie uma correção >

Compartilhe
esta música

Ouça estações relacionadas a Skálmöld no Vagalume.FM
ESTAÇÕES