Katla
Página inicial > K > Katla > Kaldidalur

Kaldidalur

Katla


Ei voga sér að jökulrönd
Drottnar hvorki né djöflar
Lífsvon mín að engu varð
Í ferðalok svo þreyttur

Eintal óttans kvað sér hljóðs
Sáttur gaf upp andann
Gröf mín þar sem gafst upp hold
Í jökulsins langa dal og kalda

Ég veit ég aldrei kem til baka
Til baka heim til þín
Ég leggst í svefninn langa
Í friði og ró í Kaldadal

Dauðans hvíta hulan köld
Graenan gróður kaefir
Lífsins dagur stuttur er
Í jökulsins langa dal og kalda

Ég veit ég aldrei kem til baka
Til baka heim til þín
Ég leggst í svefninn langa
Í friði og ró í Kaldadal
Ég sef og aldrei dagar aftur
Nótt mín eilíf er
Ég leggst í svefninn langa
Í friði og ró í Kaldadal

Letra enviada por null

Encontrou algum erro na letra? Por favor, envie uma correção >

Compartilhe
esta música

Ouça estações relacionadas a Katla no Vagalume.FM
ESTAÇÕES